Skammist ykkar.

Er þetta ekki ólöglegt? Hvernig stendur á því að ríkisstjórnin kemst upp með þetta?  Geta ráðherrar og þingmenn endalaust brotið lög gegn öryrkjum? 

Það er ekkert grín að lenda í því að veikjast alvarlega, vera kippt út af vinnumarkaði og vera svo settur á svo kallaðar örorkubætur.

Maður er búin að vinna alla sína hunds og katta tíð, borga í allskonar sjóði sem eiga að vera trygging ef eitthvað kemur fyrir mann. Örorkubætur eru laun sem við, sem lendum í slysum og veikindum eigum að fá. Við eigum þessi laun inni... þetta eru ekki "bætur".

Eini flokkurinn sem virðist vera að vekja máls á þessum málaflokki er Flokkur Fólksins og eiga þau bestu þakkir fyrir. Þau fá/fengu mitt atkvæði í alþingiskosningunum og hvet ég alla öryrkja að kjósa þau í næstu kosningum, það er ekki pólitík það er nauðsyn og eina leiðin til að bæta hag öryrkja. Hinir flokkarnir verða bara pirraðir ef minnst er á öryrkja eins og þeir séu einhver sníkjudýr á ríkinu..

"Öryrkjar"... ég hata þetta orð... því fylgir niðurlæging, fátækt og smán. 

Þannig er komið fram við fólk sem veikist alvarlega í þessu þjóðfélagi.

 


mbl.is Öryrkjar fái 86.000 kr. undir lágmarkslaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin uppgjöf.

Hvers konar kerfi er þetta... skrítið svona við fyrstu sýn. 

Já Trump heldur áfram og er ekkert að gefast upp...enda mikið svindl í þessum kosningum.

Ef sá gamli Biden kemst að þá er ekki von á góðu.  Af tvennu illu þá hefði ég kosið Trump, hann er að minnsta kosti friðarsinni og heldur Kínverjunum í skefjum. 


mbl.is Trump neitar að gefast upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband