Skammist ykkar.

Er þetta ekki ólöglegt? Hvernig stendur á því að ríkisstjórnin kemst upp með þetta?  Geta ráðherrar og þingmenn endalaust brotið lög gegn öryrkjum? 

Það er ekkert grín að lenda í því að veikjast alvarlega, vera kippt út af vinnumarkaði og vera svo settur á svo kallaðar örorkubætur.

Maður er búin að vinna alla sína hunds og katta tíð, borga í allskonar sjóði sem eiga að vera trygging ef eitthvað kemur fyrir mann. Örorkubætur eru laun sem við, sem lendum í slysum og veikindum eigum að fá. Við eigum þessi laun inni... þetta eru ekki "bætur".

Eini flokkurinn sem virðist vera að vekja máls á þessum málaflokki er Flokkur Fólksins og eiga þau bestu þakkir fyrir. Þau fá/fengu mitt atkvæði í alþingiskosningunum og hvet ég alla öryrkja að kjósa þau í næstu kosningum, það er ekki pólitík það er nauðsyn og eina leiðin til að bæta hag öryrkja. Hinir flokkarnir verða bara pirraðir ef minnst er á öryrkja eins og þeir séu einhver sníkjudýr á ríkinu..

"Öryrkjar"... ég hata þetta orð... því fylgir niðurlæging, fátækt og smán. 

Þannig er komið fram við fólk sem veikist alvarlega í þessu þjóðfélagi.

 


mbl.is Öryrkjar fái 86.000 kr. undir lágmarkslaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband