Rússnesk kostning

Ég er alveg bit yfir þessari niðurstöðu í forsetakosningunum, en það var svo sem ekki við öðru að búast af landanum.

Það var smá von að fólk tæki við sér og sæi hvað er að gerast í kringum það... en nei ekki glæta.

Ég er endanlega búin að gefast upp á þessari þjóð minni, ég er ekki tapsár heldur sorgmædd yfir óendalegri heimsku og hálfvitahætti íslendinga, þeim er ekki við bjargandi.

Elítan skálar nú í kampavíni og hlær að almenningi, "þessir eymingjar,nú getum við gert hvað sem er, við höfum þessa bjána í vasanum, skál ha ha ha"

Svo íslendingar góðir, ekki byrja að væla yfir 5faldri hækkun á rafmagni þegar orkupakki 4 verður samþykktur.

Ekki byrja að væla þegar þið verðið rukkuð um kalda vatnið.

Ekki byrja að væla þegar Landsvirkjun verður seld í bútum til elítunnar.

Ekki byrja að væla þegar bankarnir verða seldir á skot prís.

Ekki byrja að væla.....

Íslendingar þið höfðu valdið í þessum kosningum,að reyna að koma í veg fyrir allt þetta og meira til...Smá vald hjá forseta, að neita að skrifa undir, setja mikilvæg mál í þjóðaratkvæðagreiðslu þ.e.a.s. virkja lýðræðið.

Nei þið völduð forseta sem hefur ekki og ætlar ekki að gera neitt af þessu.

Forseta sem vill koma okkur í ESB, forseta sem virðir ekki lýðræðið, forseta sem hefur gerst sekur um afglöp í starfi o.s.frv. 

Heimska, hjarðhegðun, skammsýni og græðgi er það sem einkennir Ísland í dag. Enn og aftur, ykkur er ekki viðbjargandi! 

Það er fullkomnað.

 


Þá byrjar ballið aftur af fullum krafti!

Við hverju búast þau???  Að rekja hvert einasta smit ferðamanna verður algjörlega ófært,

 svo íslendingar upp með hanzkana, grímuna og helst spreya sig allan með spritti :)


mbl.is „Óþægilegt og óþolandi“ bakslag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband